Tónverkamiðstöð og Sinfóníuhljómsveit Íslands kalla nú eftir umsóknum frá tónskáldum um þátttöku í YRKJU III. Umsóknarfrestur er til og með 15. maí 2017.
YRKJA er starfsþróunarverkefni Tónverkamiðstöðvar og veitir tónskáldum sem stödd eru á fyrri hluta starfsferils síns, tækifæri til að vinna með úrvali íslenskra listastofnana.
Að þessu sinni bjóða Tónverkamiðstöð og Sinfóníuhljómsveit Íslands tveimur tónskáldum að verja tímabilinu frá 20. maí 2017 til 26. janúar 2018 í YRKJU undir handleiðslu Daníels Bjarnasonar tónskálds og hljómsveitarstjóra. Tónskáldin munu fá innsýn í innra starf hljómsveitarinnar, þróa færni sína í að semja verk fyrir sinfóníuhljómsveit og að endingu verður verkið flutt á sérstökum tónleikum á Myrkum músíkdögum í lok janúar 2018. Tónskáldin munu jafnframt fá tækifæri til að vinna náið með hljóðfæraleikurum í sérstakri Tónskáldastofu.
Verkefnastjórn YRKJU hvetur bæði karla og konur að sækja um en við val á þátttakendum í YRKU III með SÍ verður horft sérstaklega til þess að jafnræði verði milli kynja.
Markmið Yrkju er að veita hagnýta reynslu sem getur orðið hornsteinn í ferli tónskáldsins. Verkefnið er fyrir tónskáld á fyrri hluta starfsferilsins og brúar bilið milli háskólanáms og starfsferils með því að undirbúa tónskáld fyrir vinnu í faglegu umhverfi hjá stærri hljómsveitum, hátíðum og öðrum listastofnunum hérlendis og erlendis. Í YRKJU fær tónskáldið tækifæri til að þróa hæfileika sína og listrænan metnað, öðlast starfsreynslu og mynda tengsl í tónlistargeiranum.
Áhersla er lögð á ferli listsköpunar og munu þátttakendur í Yrkju verða hvattir til að þróa hugmyndir sínar og aðferðir við sköpun. Við viljum hlúa að starfsferli tónskáldanna og mun því verkefnið fela í sér ráðgjafaviðtöl í Tónverkamiðstöð um starfsferil tónskáldins og mun miðstöðin skipuleggja fund þar sem tónskáldin í verkefninu hittast og deila reynslu sinni af verkefninu og skiptast á hugmyndum.
Umsóknarfrestur er til og með 15. maí 2017.
ATH! Verkefnið er opið öllum óháð aldri sem hafa að lokið háskólagráðu í tónsmíðum eða tengdu námi og hafa útskrifast á síðustu 10 árum.
Viðkomandi má ekki vera í námi samhliða verkefninu.
Comments