top of page
Yfirlit yfir styrki

Tónlistarstyrkir

Tenglar

Tónlistarsjóður. Hlutverk sjóðsins er að efla íslenska tónlist og stuðla að kynningu á íslenskum tónlistarmönnum og tónsköpun þeirra.

​

Tónskáldasjóður RÚV og STEFs stuðlar að gerð og útbreiðslu stærri tónverka. Hann veitir styrki til að greiða íslenskum tónskáldum kostnað og laun fyrir að semja tónverk.

​

Tónskáldasjóður 365. (einnig nefndur Tónskáldasjóður Bylgjunnar og Stöðvar 2) Tónskáldasjóði 365 er ætlað að stuðla að aukinni sköpun nýrrar íslenskrar tónlistar sem efla mætti íslenska menningu og dagskrárgerð, m.a. á miðlum 365.

​

Hljóðritasjóður (Rannís/Menntamálaráðuneytið). Hljóðritasjóður veitir styrki til hljóðritunar nýrrar, frumsamdrar tónlistar sem stuðla á að nýsköpun. Veittir eru styrkir í almenn verkefni og þróunarverkefni. Styrkir úr Hljóðritasjóði skulu veittir til ákveðinna verkefna og ekki lengur en til eins árs í senn.

​

Endurgreiðslur vegna hljóðrita. Tónlistarmenn geta sótt um endurgreiðslu á kostnaði vegna hljóðritunar frá Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisinu. 80% eða meira af kostnaði þarf að hafa fallið til á Íslandi og hægt er að sækja um endurgreiðslu á 25% af kostnaði.

​

Útflutningssjóður íslenskrar tónlistar. Hlutverk útflutningssjóðs íslenskrar tónlistar er að styrkja íslenskt tónlistarfólk við að koma tónlist sinni til stærri áheyrendahóps, á stærri markaði og auka möguleika þess á velgengni utan Íslands.

​

Kraumur hefur ekki auglýst eftir nýjum verkefnum eða auglýst umsóknarferli frá árinu 2015. Verkefnastjóri Kraums tekur við fyrirspurnum er varðar Kraumsverðlaunin og ábendingum um tónlistartengd verkefni sem komið er áfram, ásamt umsögn, til stjórnar Auroru velgarðarsjóðs. Hafa má samband við verkefnastjóra sjóðsins gegnum; kraumur@kraumur.is

​

Ernst von Siemens er alþjóðlegur sjóður sem styrkir commissionir, hátíðir, námskeið og fleira sem tengist tónskáldum og nýjum verkum.

​

Listamannalaun - Hlutverk launasjóðs hönnuða, launasjóðs myndlistarmanna, launasjóðs rithöfunda, launasjóðs sviðslistafólks, launasjóðs tónlistarflytjenda og launasjóðs tónskálda er að veita listamönnum starfslaun og styrki samkvæmt lögum um listamannalaun. Sérstakar nefndir annast úthlutun starfslauna úr sjóðunum og eru þær skipaðar samkvæmt tillögum fagfélaga ofangreindra sjóða.

​

Ferðasjóður STEFs - Sjóðurinn er fyrst og fremst ætlaður þeim höfundum og verkefnum sem falla ekki undir skilyrði Reykjavíkur-Loftbrú. Gert er ráð fyrir því að umsækjendur hafi afhent STEF umboð sitt og séu orðnir gildir aðalfélagar í öðru hvoru aðildarfélaga STEFs, þ.e. Félags Tónskálda og Textahöfunda eða Tónskáldafélagi Íslands.

​

Nótnasjóður STEFs, markmið sjóðsins er að styrkja útgáfu íslenskra tónverka, þ.e. tónlistar með eða án texta, á nótum og á stafrænu formi.

​

Hljóðritasjóður STEFs, markmið Hljóðritasjóðs er að styrkja útgáfu íslenskra tónverka, þ.e. tónlistar með eða án texta, á hljómplötum, hljómdiskum og öðrum hljóðritum sem og á mynddiskum og öðrum myndritum.

​

Styrktarsjóður Samtaka um tónlistarhús og Ruthar Hermanns. Sjóðurinn veitir tónlistarfólki fjárhagslegan stuðning til tónleikahalds í Hörpu. Sérstök áhersla er lögð á að styrkja ungt og framúrskarandi tónlistarfólk.

​

Ýlir – tónlistarsjóður Hörpu fyrir ungt fólk,fyrir tónleika og verkefni sem fyrirhuguð eru á árinu.

​

Tónaland: Styrkir til tónleikahalds á landsbyggðinni. Aðeins fyrir félagsmenn FÍT og FÍH.

​

Hljómdiskasjóður FÍT. Félagið úthlutar árlega úr Hljómdiskasjóði til félagsmanna.  Að jafnaði eru veittir eru tveir styrkir á ári en úthlutun tekur mið af fjármagnsstöðu sjóðsins, en hann er fjármagnaður með tekjum frá SFH.

​

Menningarsjóður FÍH tekur við umsóknum allt árið á heimasíðunni sinni. Sjóðurinn styrkir meðlimi FÍH til náms, tónleikahalds og útgáfu hljómfanga.Sjóðsnefndin fundar u.þ.b. annan hvern mánuð.

​

Tónlistarsjóður Rótarý - veitir ungu tónlistarfólki sem skarað hefur fram úr á einhverju sviði tónlistar viðurkenningu í formi fjárstyrks til frekara náms.

Tónlistarsjóður. 

​

​

Tónskáldasjóður RÚV og STEFs 

​

​

​

Tónskáldasjóður 365

​

​

​

Hljóðritasjóður

​

​

​

​

Endurgreiðslur vegna hljóðrita

Spurt og svarað (bæklingur á ensku)

​

​

​

Útflutningssjóður íslenskrar tónlistar

​

​

​

Kraumur

​

 

 

 

 

Ernst von Siemens 

​

​

Listamannalaun 

​

​

​

​

​

Ferðasjóður STEFs 

​

​

​

​

​

Nótnasjóður STEFs

​

​

Hljóðritasjóður STEFs

​

​

​

Styrktarsjóður Ruthar Hermanns

​

​

​

Ýlir

​

​

Tónaland

​

​

Hljómdiskasjóður FÍT. 

​

 

 

Menningarsjóður FÍH 

​

​

​

Tónlistarsjóður Rótarý

Aðrir styrkir

Tenglar

Borgarsjóður Reykjavíkurborgar - Borgarsjóður hefur þann tilgang að veita styrkjum til almennrar liststarfsemi til einstaklinga, menningarstofnana og listhópa sem sannað hafa gildi sitt í reykvísku menningarlífi eða geta með skýrum hætti sýnt fram á gildi starfs síns, án þess þó að styrkir séu tengdir ákveðnu verkefni.

​

Ingjaldssjóður styrkir „efnilega íslenska námsmenn við Háskóla Íslands til framhaldsnáms erlendis í rekstrarstjórnun eða alþjóðlegum viðskiptum eða nemendur í tónlist“.

 

Lista- og menningarsjóður Kópavogs veitir styrki til einstaklinga, listhópa, félagasamtaka, fyrirtækja og stofnana „til almennrar liststarfsemi eða verkefna sem eru í samræmi við stefnumörkun og áherslur bæjarins í lista- og menningarmálum.“ Við mat á umsóknum verður m.a. horft til listræns þáttar verkefnisins og hvernig það geti auðgað menningarlíf bæjarins. Þá verður verkefnum sem fela í sér frumsköpun og frumflutning veitt brautargengi.

​

Minningarsjóður um Jean Pierre Jaquillat, fyrrum aðalstjórnanda Sinfóníuhljómsveitar Íslands, veitir árlega efnilegum tónlistarmanni styrk til framhaldsrnáms í tónlist, erlendis.

​

Menningarsjóður Akureyrarbæjar veitir styrki til menningar- og fræðistarfa.

​

Menningarmálanefndir sveitafélaga veita styrki til verkefna sem tengjast menningu og listum. Til að nálgast umsóknareyðublað þarf yfirleitt að sækja um aðgang að íbúagátt sveitafélaganna.

​

Mosfellsbær – menningarstyrkir. Menningarmálanefnd auglýsir reglulega eftir aðilum sem óska eftir fjárframlögum frá nefndinni vegna listviðburða og menningarmála.  Hér undir falla fjárframlög til margvíslegrar menningarstarfsemi í bænum.

​

Uppbyggingarsjóður Vestfjarða Veittir eru stofn- og rekstrarstyrkir til menningarstofnana, verkefnastyrkir til menningarmála og verkefnastyrkir til atvinnuþróunar- og nýsköpunarverkefna. Nýbreytni er að hægt er að sækja um stærri styrki til lengri tíma en áður, allt að þremur árum.

​

Uppbyggingarsjóður Eyþings - veitir verkefnastyrki til menningarverkefna, atvinnuþróunar og nýsköpunar auk stofn- og rekstrarstyrkja til menningarmála.

​

Uppbyggingarsjóður Austurlands Sjóðurinn hefur það hlutverk að styrkja menningar- og nýsköpunarverkefni, auk annarra verkefna sem falla að sóknaráætlun landshlutans.

​

Uppbyggingarsjóður Vesturlands. Sjóðurinn hefur það hlutverk að styrkja menningar- og nýsköpunarverkefni, auk annarra verkefna sem falla að sóknaráætlun landshlutans.

​

Uppbyggingarsjóður Suðurlands Sjóðurinn hefur það hlutverk að veita verkefnastyrki á sviði nýsköpunar, menningar og atvinnuþróunar á Suðurlandi.

​

Uppbyggingarsjóður Norðurlands vestra. Styrkir til atvinnuþróunar og nýsköpunar. Verkefnastyrkir á sviði menningar. Stofn- og rekstrarstyrkir á sviði menningar.

​

Samfélagssjóður Valitor. Hlutverk sjóðsins er að styðja margvísleg menningar-, líknar- og samfélagsmál.

​

Samfélagssjóður Landsvirkjunar. Landsvirkjun styrkir mörg góð málefni ár hvert og fyrirtækinu berast boð um að taka þátt í og styrkja áhugaverð verkefni. Samfélagssjóður Landsvirkjunar veitir styrki til lista, góðgerðar-, menningar-, íþrótta- umhverfis- og menntamála.

​

Samfélagssjóður Landsbankans. Samfélagsstyrkjunum er ætlað að styðja við verkefni á ýmsum sviðum, þar á meðal á sviði mannúðar-mála, menningar og lista, menntunar, rannsókna og vísinda, for-varnar- og æskulýðsstarfs og sértækrar útgáfustarfsemi.

​

Samfélagssjóður Rio Tinto Alcan veittir eru styrkir til samfélagsmála m.a. menningarmála.

​

Æskulýðssjóður styrkir ýmis verkefni á vegum æskulýðsfélaga og æskulýðssamtaka.

​

Barnavinafélagið Sumargjöf styrkir rannsókna-, lista- og þróunarverkefni sem geta nýst börnum á leik- og grunnskólaaldri.

​

Kjarvalsstofa í París. Kjarvalsstofa í París er stúdíóíbúð með vinnuaðstöðu, sem ætluð er til dvalar fyrir listamenn. Stofan er í eigu Reykjavíkurborgar, mennta- og menningarmálaráðuneytisins og Seðlabanka Íslands og er staðsett í miðborg Parísar, skammt frá Notre Dame dómkirkjunni.

​

​

Borgarsjóður Reykjavíkurborgar 

​

​

​

​

 

Ingjaldssjóður

​

​

 

Lista- og menningarsjóður Kópavogs 

​

​

​

​

Minningarsjóður um Jean Pierre Jaquillat

​

​

Menningarsjóður Akureyrarbæjar

​

Menningarmálanefndir sveitafélaga 

​

​

​

Mosfellsbær – menningarstyrkir

​

​

​

​

Uppbyggingarsjóður Vestfjarða

​

​

​

​

Uppbyggingarsjóður Eyþings

​

​

Uppbyggingarsjóður Austurlands

​

​

​

Uppbyggingarsjóður Vesturlands

​

​

​

Uppbyggingarsjóður Suðurlands 

​

​

Uppbyggingarsjóður Norðurlands vestra

​

​

Samfélagssjóður Valitor

​

​

Samfélagssjóður Landsvirkjunar

​

​

​

​

Samfélagssjóður Landsbankans.

​

​

​

​

Samfélagssjóður Rio Tinto Alcan

​

​

Æskulýðssjóður 

​

Barnavinafélagið Sumargjöf 

​

​

Kjarvalsstofa í París

​

Erlendir samstarfsstyrkir

​

Norræni menningarsjóðurinn - Nordisk kulturfond styrkir menningarsamstarf milli Norðurlandanna. Oftast er gerð krafa um minnst þriggja landa samstarf.

​

Norræna menningargáttin - Kulturkontakt Nord, menningar- og listaáætlunin. Styrkir menningarsamstarf milli Norðurlandanna. Verkefnastyrkir, ferðastyrkir og netverksstyrkir.

​

Menningaráætlun ESB - Creative Europe. Ýmsar styrkjaleiðir

​

NATA - North Atlantic Tourist Association sér um að móta sameiginlega stefnu í ferðamálum fyrir Vestur-Norðurlönd (Ísland, Grænland og Færeyjar) og styrkir ýmis verkefni sem efla ferðaþjónustu innan svæðisins, m.a. menningartengd verkefni.

​

NAPA – Styrkir vegna verkefna í Grænlandi. Sjóðurinn styrkir einstaklinga, samtök og stofnanir sem þurfa á fjárhagslegum stuðningi að halda til að halda uppi verkefnum tengd menningu, menntun, vísindum og upplýsingastarfsemi í Grænlandi.

​

Vestnorræni höfuðborgasjóðurinn. Tilgangur sjóðsins er að efla skilning og samvinnu milli kjörinna fulltrúa og íbúa í Nuuk, Reykjavík og Þórshöfn og styðja ýmsa starfsemi í þessu skyni, fyrst og fremst á sviði menningarmála.

​

A.P. Møller sjóðurinn styrkir samstarf og menningarstarf milli Danmerkur og annarra Norðurlanda. Jafnt stofnanir og einstaklingar geta sótt um styrki í sjóðinn.

​

Clara Lachmann sjóðurinn styrkir menningarsamstarf milli Norðurlandanna.

​

Frumkvæði ungs fólks er íslenska heitið á Ungmennaáætlun Evrópusambandsins, Youth in Action, og er samstarfsverkefni ESB, mennta- og menningarmálaráðuneytisins og UMFÍ. Áætlunin veitir styrki fyrir ungt fólk á aldrinum 15-30 ára og þá sem starfa með ungu fólki.

​

European Cultural Foundation. Samstarfsstyrkir vegna samvinnu tveggja eða fleiri Evrópulanda.

​

Allianz Kulturstiftung styrkir samstarfsverkefni þriggja eða fleiri Evrópulanda. Sjóðurinn leggur áherslu á að styrkja framúrskarandi, unga listamenn sem leggja stund á nútímalega list og nýsköpun á listasviðinu.

​

The American-Scandinavian Foundation – styrkja menningartengd verkefni í Skandinavíulandi og Bandaríkjunum. Verkefnin verða að vekja áhuga almennings á menningu landsins sem kynnt er í verkefninu.

​

Sjóður Egils Skallagrímssonar - Tilgangur sjóðsins er að efla íslenska menningu og listir á Bretlandseyjum en í því skyni veitir hann fjárstyrki. ATH! Póststimpill gildir ekki, umsóknin verður að berast í pósti fyrir þessa dagsetningu.

​

Nordplus, verkefnastyrkur - Markmið Tungumála- og menningaráætlunar Nordplus eru að auka skilning á grannmálum og auka áhuga, þekkingu og skilning á norrænni menningu, málum og lífsháttum.

​

Ferðastyrkir Norrænu menningargáttarinnar – Styrkir ferðalög listamanna og þeirra sem vinna í menningargeiranum milli Norðurlandanna auk Eystrasaltslandanna.

​

Dansk-íslenski sjóðurinn - Samstarfssjóður Íslands og Danmerkur

​

Sænsk-íslenski samstarfssjóðurinn. Sjóðurinn á að efla sænsk-íslenska samvinnu, styðja gagnkvæm menningarsamskipti og fræða um sænska og íslenska menningu og þjóðfélög. Sjóðurinnn styrkir á ári hverju tvíhliða samstarf  einkum á sviði menningar, menntunar og rannsókna

​

Menningarsjóður Íslands og Finnlands. Tilgangur sjóðsins er að efla menningartengsl Finnlands og Íslands. Í því skyni veitir sjóðurinn árlega ferðastyrki og annan fjárstuðning. Styrkir eru öðru fremur veittir einstaklingum. Stuðningur við samtök og stofnanir kemur einnig til greina ef sérstaklega stendur á. Styrkir til að sækja norrænar eða alþjóðlegar ráðstefnur koma að jafnaði ekki til greina.

​

Framlag til norsks-íslensks menningarstarfs. Markmið framlagsins er að stuðla að fjölbreyttu menningarsamstarfi Noregs og Íslands og geta Norðmenn og Íslendingar sótt um framlag til verkefna sem teljast mikilvæg í báðum löndum og vera líkleg til að leiða til varanlegra tengsla milli fagmanna, listamanna og fræðimanna. Verkefnin skulu endurspegla fjölbreytt listræn form og hafa í senn skírskotun til sögunnar og samtímans.

​

Þjóðhátíðargjöf Norðmanna. Tilgangur sjóðsins er að auðvelda Íslendingum að ferðast til Noregs. Í þessu skyni veitir sjóðurinn viðurkenndum félögum, samtökum og skipulögðum hópum ferðastyrki til Noregs til að efla samskipti þjóðanna.

​

Samstarfsstyrkir Bandaríska sendiráðsins - styrkir fyrir samstarfsverkefni milli Íslands og Bandaríkjanna.

​

Letterstedska. Ferðastyrkir,  ráðstefnuhald og útgáfa.

​

Scandinavia – Japan Sasakawa Foundation. Veitir styrki til að efla tengsl Íslands og Japans. Styrkirnir eru veittir til verkefna í samstarfi eða í tenglsum við japanska aðila. Veittir eru m.a. ferðastyrkir, námsstyrkir og styrkir til skammtímadvalar. Fyrir hönd Íslandsdeildar tekur Björg Jóhannesdóttir við umsóknum bjorgmin[at]gmail.com.

​

The Ernst Schering Foundation. Sjóðurinn styrkir verkefni í nútímalistum sem sýnd eru í Berlín.

Tenglar

Norræni menningarsjóðurinn - Nordisk kulturfond s

​

Norræna menningargáttin - Kulturkontakt Nord,

​

​

Creative Europe

​

NATA

​

​

 

NAPA

​

​

​

Vestnorræni höfuðborgasjóðurinn

​

​

​

A.P. Møller sjóðurinn 

​

​

Clara Lachmann sjóðurinn

​

Frumkvæði ungs fólks 

​

​

​

​

European Cultural Foundation

​

​

Allianz Kulturstiftung

​

​

​

The American-Scandinavian Foundation

​

​

Sjóður Egils Skallagrímssonar

​

​

​

Nordplus, verkefnastyrkur

​

​

​

Ferðastyrkir Norrænu menningargáttarinnar

​

Dansk-íslenski sjóðurinn

​

Sænsk-íslenski samstarfssjóðurinn

​

​

 

 

Menningarsjóður Íslands og Finnlands

​

​

​

​

Framlag til norsks-íslensks menningarstarfs.+

​

​

​

​

​

Þjóðhátíðargjöf Norðmanna

​

​

​

Samstarfsstyrkir Bandaríska sendiráðsins

​

Letterstedska

​

Scandinavia – Japan Sasakawa Foundation

​

​

​

The Ernst Schering Foundation

bottom of page