top of page
Search

Íslensku tónlistarverðlaunin

ÍSLENSKU TÓNLISTARVERÐLAUNIN: OPIÐ FYRIR INNSENDINGAR

Opnað hefur verið fyrir innsendingar í Íslensku tónlistarverðlaunin 2016 og stendur innsendingartímabilið til og með 15. janúar næstkomandi. Verðlaunin verða afhent föstudaginn 2. mars 2017 en veitt verða verðlaun fyrir tónlistarárið 2016.

Tónverkamiðstöð hvetur öll tónskáld til að senda inn skráningu eftir því sem við á en alls verða veitt verðlaun í 30 flokkum að meðtöldum heiðursverðlaunum. Innsendingar eru nú alfarið á rafrænu formi.

Við hvetjum ykkur til að kynna ykkur þátttökureglurnar vel en dómnefndir munu yfirfara skráningar og velja þá sem tilnefndir verða.

Ef þér er ekkert að vanbúnaði má fara á umsóknarsíðu Íslensku tónlistarverðlaunanna hér.

INNSENDINGARGJALD

Vakin er athygli á því að innsending verður ekki gild fyrr en innsendingargjald hefur verið greitt. Innsendingargjald fyrir hverja innsendingu er 5.000 kr. og skal greiðast inn á reikning Samtóns 301-26-4188, kt. 440203-4180. Innsendingargjald þarf að greiða í umsóknarferlinu (undir Skráning > skrá verk) til að geta klárað umsóknina. Sendi sami aðilinn inn fleiri en eina tilnefningu greiðir hann þó aldrei hærra gjald en 15.000 krónur.

Í skráningarferlinu er tekið við rafrænum eintökum af tilnefndum verkum en það má einnig skila geisladiskum og vínýlplötum á skrifstofu STEFs. Dómnefndir munu hlusta á öll innsend verk.

Tónverkamiðstöð mun með ánægju og af fremsta megni veita þeim tónskáldum sem eiga verk hjá miðstöðinni aðstoð við innsendingarferlið. Miðstöðin sendir þó hvorki inn verk í eigin nafni né greiðir innsendingargjöld. Vinsamlegast hafið samband við Valgerði G. Halldórsdóttur framkvæmdastjóra Tónverkamiðstöðvar ef óskað er aðstoðar við innsendingar með því að senda póst á vala@mic.is.

Fyrirspurnir varðandi Íslensku tónlistarverðlaunin er hægt að senda á iston@iston.is.

 

Helstu dagsetningar: Tekið er við tilnefningum til miðnættis 15. janúar 2017 Verðlaunahátíð í Hörpu: 2. mars 2017


 

Nánari upplýsingar um Íslensku tónlistarverðlaunin má nálgast á iston.is.

5 views
bottom of page