top of page
Search

MUSICA NOVA: Auglýst eftir styrkumsóknum

Nýsköpunarsjóður tónlistar, Musica Nova, auglýsir eftir styrkumsóknum vegna starfsársins 2016

Sjóðurinn auglýsir hér með eftir umsóknum um styrki til nýsköpunar í tónlist. Flytjendur og tónleikahaldarar geta sótt um styrk til að panta tónverk og skal styrkfjárhæðin aðeins notuð til þess. Umsækjendur ábyrgjast frumflutning verksins.

Í umsókn skal taka fram:

  1. höfund tónverks

  2. tímalengd verks

  3. flytjendur

  4. hljóðfæraskipan

  5. áætlaða tímasetningu frumflutnings

  6. upphæð sem sótt er um

Fjárhagsáætlun verkefnisins sem og ferilskrá umsækjanda (flytjanda/tónleikahaldara) skal fylgja umsókn.

Vinsamlegast sendið umsóknir á netfangið musicanova.iceland@gmail.com.

Umsóknarfrestur rennur út á miðnætti, mánudaginn 21. mars 2016

Nýsköpunarsjóður tónlistar er styrktur af Reykjavíkurborg

11 views
bottom of page